Ég var sjálf að byrja í Kvennaskólanum í Reykjavík og mér finnst mjög gaman þar. En það eru auðvitað gallar eins og í öllu. Félagslífið er mjög gott. Nemendafélagið Keðjan stendur fyrir ýmsum viðburðum og skemmtunum fyrir nemendur, m.a. böllum (eins og Busaballið, Eplaballið, Árshátíðin ofl.), ferðum, keppnum og fleira. Til er það sem kallast Peysufatadagur þar sem nemendur í 3.bekk klæða sig upp í gamaldags peysuföt, syngja og hafa gaman í bænum. Í 4.bekk í lok vorannar er svo það sem...