Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Eldað fyrir einn (8 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Komiði sæl og bless! Ég á við smá vandamál að stríða. Málið er að mér finnst alveg ótrúlega gaman að elda (sem er ekki vandamálið) og líka mjög gaman að borða það sem ég elda ef vel tekst til. Venjulega erum við tvö í mat en upp á síðkastið er kærastinn minn búinn að vera út úr bænum að vinna og verður í nokkrar vikur. Þetta þýðir að ég hef verið að elda fyrir mig eina. Það er einmitt vandamálið. Það er ekki ætlast til þess að einstaklingar eldi mat handa sér sjálfum og engum öðrum! Þegar ég...

Leikurinn í kvöld.. (8 álit)

í Handbolti fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Ég verð að segja að ég hef orðið fyrir soldið miklum vonbrigðum með þessa úrslitaleiki Hauka og KA. Leikurinn í kvöld var engin undantekning. Annað liðið, í þessu tilviki Haukar enda á heimavelli, var með mikið forskot og leikurinn einkenndist af miklum æsingi. Þetta hefur verið svona í öllum leikjunum fjórum. Liðið sem á heimaleik hefur haft leikinn í hendi sér allan tímann og gestirnir hafa aldrei getað shit. Mér finnst bara að liðin í úrslitum eigi að geta spilað almennilegan handbolta...

X-MEN (12 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Halló öll ;-) Ég vildi bara segja ykkur frá góðri bíóferð. Ég fór í bíó um helgina að sjá myndina X-Men. Ég bjóst ekki við neinni sérstaklega góðri mynd því mér finnst svona súperhetju myndir yfirleitt vera frekar asnalegar og ekki nærri því eins góðar og teiknimyndablöðin. En X-Men kom bara virkilega á óvart. Hún var alveg frábær. Handritið var alveg ágætt og leikstjórinn tapaði sér ekki alveg í einhverjum tæknibrellum, hasar og sprengingum eins og algengt er með svona myndir. Þetta var vel...

Ritstuldur (2 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er alveg ótrúlegt hvað sumir notendur Huga.is geta verið ófrjóir í hausnum. Ég var að lesa þessar greinar sem sendar hafa verið inn í þessu áhugamáli um formúlu 1 og nærri hver einasta grein er orðrétt stolið frá mbl.is eða öðrum fréttavefum. þetta finnst mér alveg fáránlegt. Þetta er bara stigagræðgi og ekkert annað. þeir sem hafa áhuga á formúlu 1 lesa þessar fréttir á mbl.is. Mér finnst að þessi vettvangur eigi að vera fyrir greinar þar sem hver og einn tjáir sínar eigin skoðanir um...

Íslensk hreinskilni?? (0 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Að mínu mati eru íslenskir karlmenn ekki síður rómantískir en aðrir. Helsti munurinn hér að mínu mati er kanski helst fólgin í aðferðunum sem islenskir karlmenn annarsvegar og erlendir hinsvegar nota þegar þeir vilja komast í náinn kynni. Íslensku karlmennirnir tala hreint út og segja hvað þeir vilja sem einhverjum konum gæti fundist einstaklega órómantískt. Karlmenn erlendis fara kanski mun fínna í hlutina og eru mjög rómantískir þangað til að þeir fá það sem þeir sóttust eftir, sem er í...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok