Ég gekk í gegnum einelti í 7 ár. Það var talað við kennara, bekkjarsystkini. Þetta lagaðist aldrei. Ég byrjaði í gagnfræðiskóla og þar lagaðist þetta alls ekkert, þar var líka kennari sem að elskaði að gera mér lífið leitt. Ég er núna útí Danmörku, og er búin að vera hér í nokkur ár og það eina sem ég get sagt er að mér hefur aldrei nokkurn tímann verið strítt eða lögð í einelti hérna. Ef ég væri þú, myndi ég herða systir þína upp. Þetta mun aldrei lagast án þess að hún gerir eitthvað í því....