Ég var að læra að skrifa nokkuð sem er kallað prósaljóð. Hér fyrir neðan er frumraun mín í slíkum kveðskap, vonandi líkar einhverjum þetta. Fjöruferð. Það var á dimmu vetrarkvöldi að í hvítfreyðandi fjöruborði hlupu stoltir hundar hins nýfundna lands. Þeir léku sér kátir eins og lömb að vori. Bjartir ballett dansarar svifu um himininn, norðuljósin birtu upp fagran fjalla salinn handan fjarðarins. Ungi maðurinn horfði á eftir hundunum þar sem þeir ærsluðust við öldurótina og slógust um...