Að loknu erfiði vinnudags
Að liggja til næsta sólarlags
Umvafinn hlýju þinna handa
Ó hve gott er að heyra þig anda

Eftir vetrarnóttina kalda
Myndi ég heiminum valda,
Og ekkert erfiði myndi mig buga
Ef ást okkar aðeins myndi duga
Að eilífu og um aldir alda.