Gæti verið minnið hjá þér. Ef þú ert með fleiri en einn minniskubb prófaðu að taka annan úr og ræsa, prófaðu svo hinn. Annars er ómögulegt að segja til um hvað þetta er. Athugaðu tengingar í móðurborðið, IDE, floppy osfrv. Athugaðu hvort öll kort í PCI raufunum séu almennilega sett í. Eins og þetta hljómar hjá þér þá gerist þetta þegar tölvan er köld. Ef tölvan hefur orðið fyrir höggi, eða einhverju álíka þá gæti þetta hugsanlega verið móðurborðið (lóðningar á borðinu gætu losnað/brotnað).