Sammála því! Þetta er orðið mjög spennandi núna, eftir annan dag er Poundstone eftstur með 3 stiga forystu á Pudzianowski sem er annar. Ostlund er þriðji og Pfister fjórði. 2 greinar eftir sem verða á morgun!
Terry Hollands í bakgrunn sýnist mér. Eru menn eitthvað að fylgjast með WSM sem er núna í gangi í USA? Eftir fyrsta dag í úrslitum er Dave Ostlund eftstur, Phil Pfister annar, Derek Poundstone þriðji og Pudzianowski fjórði, reyndar eru bara 3 greinar búnar og 4 eftir. Mjög spennandi!
Þetta eru Changer! Kristján trommari er þarna fyrir aftan í gulum jakka, Egill söngvari heldur á pínulitlum gítar, svo er gamli bassaleikarinn hann Gísli þarna og svo Jói gítarleikari sköllóttur. Synd að þeir séu hættir!
Það held ég að sé bara rugl. Á tímum Jóns Páls vissu menn ekki eins mikið um æfingar og æfðu (allavega jón páll) alveg endalaust og hvíldu lítið. Fyrir aflraunir æfðu þeir t.d. mest með lyftingastöngum, annað en er í dag þar sem menn sérhæfa sig alveg t.d. í aflraunum. Jón Páll var svo fullur af orku og anda að ég held að hann hefði rústað hverjum sem er!!
Hver er ástæðan? Mér finnst skrítið að fólk sleppi réttstöðunni því að hún er svo góð æfing. Að mínu mati eina æfingin sem tekur almennilega á mjóbakinu, og auðvitað vel á gripinu, trappanum, latsanum og löppunum líka, öllu bara! Mögnuð æfing!!!
Mér finnst nú sólóin hjá kerry og jeff hljóma nánast alveg eins, jeff er líka með þetta whammy, harmonics og hraðar nótur eins og kerry. Svona Slayer sóló hjá þeim báðum sem er helvíti töff!!!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..