Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gvendurf
gvendurf Notandi frá fornöld 770 stig
Áhugamál: Húmor, Leikhús

Verð á klakanum í ALLT sumar :( (0 álit)

í Ferðalög fyrir 21 árum, 1 mánuði
Eins og nafnið á greininni segir til þá mun ég neyðast til að vera hér á landi í sumar. Ekki að það sé neitt HRÆÐILEGT en ég er bara svo vanur að fara út á sumrin. Ég held að ég hafi farið næstum hvert sumar frá fæðingu. Foreldrar mínir eru nebbla ekki saman lengur svo það hefur verið svona til skiptis, fer með pabba eitt sumarið og svo með mömmu næsta. Þetta sumar er komið að mömmu í röðinni en hún er bara í barneignarfríi svo hún fer nú ekki langt held ég. Það er bara að vona að pabbi...

Pælingar (2 álit)

í Vísindi fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hér koma nokkrar pælingar sem mér datt í hug að skrifa: Það er alltaf sagt að samkvæmt biblíunni hafi Adam og Eva verið fyrstu mannverurnar á jörðinni. Ég var bara svona að spá í hvernig þau bara föttuðu t.d. að borða. Hvernig gátu þau bara uppgötvað að maður á að setja matinn í munninn og tyggja?? Líka með að fjölga sér, það er ekki sjens að þau, nýkominn til jarðarinnar og vita ekkert um hana, hafi bara fjölgað sér eins og ekkert væri. Ég held að ef Adam og Eva hefðu einhvern tímann verið...

Fleiri spoilerar. Harry Potter 2. (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hér koma fleiri spoilerar úr Harry Potter og leyniklefanum, ef þið viljið láta ykkur bregða á myndinni skulið þið sleppa því að lesa þetta. En ef þið viljið vita af stöðunum sem ykkur mun sennilega bregða skulið þið lesa eftirfarandi texta: Þegar Harry er búinn að ferðast í gegnum arinn frá Dursleys fjölskyldunni lendir hann í afskekktri og dimmri búð. Hann fer að skoða hlutina þar og stingur meðal annars hendinni inn í steingerða hönd. Höndin grípur um hann og ég verð að viðurkenna að þar...

3 Harry Potter 2 SPOILERAR!!! (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Dobby húsálfur reynir að hindra inngöngu Harrys í Hogwartsskóla m.a. með því að taka bréfin hans, loka veggnum inn á brautarpall 9 og 3/4 og láta rotara elta hann í Quiddich leik í skólanum. ——————————————– ——– Draco Malfoy og faðir hans eiga Dobby. ———————————————– ——- Gilderoy Lockhart, nýi gaurinn, er ekki eins hugrakkur og allir halda, hann er í raun algjör aumingi. ——————————————— ———– Fleiri koma seinna, Gvendurf.

Af hverju (4 álit)

í Hátíðir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég var bara að pæla… Af hverju setjum við alltaf upp jólaTRÉ en ekki t.d. jólastein eða eitthvað slíkt? Af hverju er rauður sagður litur jólanna? Af hverju eru jólin 25. Desember? Af hverju eru jólasveinarnir 13? Af hverju er jólaKÖTTUR í þjóðsögum en ekki eitthvað skrímsli? Ég var bara svona að pæla….
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok