Hér koma nokkrar pælingar sem mér datt í hug að skrifa:


Það er alltaf sagt að samkvæmt biblíunni hafi Adam og Eva verið fyrstu mannverurnar á jörðinni. Ég var bara svona að spá í hvernig þau bara föttuðu t.d. að borða. Hvernig gátu þau bara uppgötvað að maður á að setja matinn í munninn og tyggja?? Líka með að fjölga sér, það er ekki sjens að þau, nýkominn til jarðarinnar og vita ekkert um hana, hafi bara fjölgað sér eins og ekkert væri. Ég held að ef Adam og Eva hefðu einhvern tímann verið til þá hefðu þau dáið úr hungri án barna….

—————————————— ———————–

Hvað er himingeimurinn stór??? Ef einhver mundi bara fara áfram út í geim ..lengra og lengra mundi hann þá bara allt í einu klessa á einhvern vegg eða er geimurinn bara endalaus?

—————————————— ———————–

Fleiri pælingar eru það ekki að sinni en það koma örugglega fleri…..

gvendurf.