Hér koma fleiri spoilerar úr Harry Potter og leyniklefanum, ef þið viljið láta ykkur bregða á myndinni skulið þið sleppa því að lesa þetta. En ef þið viljið vita af stöðunum sem ykkur mun sennilega bregða skulið þið lesa eftirfarandi texta:



Þegar Harry er búinn að ferðast í gegnum arinn frá Dursleys fjölskyldunni lendir hann í afskekktri og dimmri búð. Hann fer að skoða hlutina þar og stingur meðal annars hendinni inn í steingerða hönd. Höndin grípur um hann og ég verð að viðurkenna að þar brá mér. Passið ykkur á því.






Þegar Harry heldur að hann sé búinn að plata risastóra snákinn með því að fara inn í annað rör (soldið erfitt að lýsa þessu en þið sjáið hvað ég er að tala um þegar þið sjáið myndina) stendur hann fyrir framan Thomas Riddle og vatnið er fyrir aftan hann. Skyndilega kemur snákurinn upp úr vatninu fyrir aftan hann og þar bregður sumum. Bara sona að vara ykkur við.

———————————————– —————


SPOILER:

Þegar Harry og Ron Breyta sér í Crabbe og Goyle, reynir Hermione að breyta sér í aðra stelpu en það mistekst svolítið. Það er lengi ráðgáta hvað hún breyttist í en svo kemur það í ljós og hún varð köttur!


Fleira er það ekki núna,


Gvendurf