Ég er kennari sjálf og veit alveg hvernig mínir kennarar voru og þeir voru mjög misjafnir eins og þeir voru margir, en í dag er mikið meira eftirlit með störfum kennara og kröfurnar orðnar meiri og starfssvið þeirra víðara. Launin hafa hins vegar ekki hækkað í takt við það. Fáðu að fylgjast með starfi kennara í eina viku og vittu til… Hann vinnur frá 8 - 4 plús nokkur kvöld í viku… en þrátt fyrir það fær hann ekki yfirvinnu.