Mig langaði bara að segja, þótt langt sé um liðið, að tannlæknirinn sem ég fór svo til tók röntgen myndir og byrjaði svo strax að bora til að reyna koma í veg fyrir að skemmdin færi í rótina, en það var því miður of seint. Ég þurfti svo að mæta í 3 önnur skipti til þess að rótarfylla tönnina og ég man ekki nákvæmlega hvað þetta kostaði en þessi eina tönn kostaði hátt í 50 þúsund kallinn. Sumsé þetta var tannskemmd eins og ég sagði.