Hafið þið farið til tannlæknis sem heitir Ásta Björt?

Ég fór til hennar nýlega vegna tannskemmdar. Ég sagði henni af verknum og hún beindi málinu
strax að endajöxlunum og slípaði einn þeirra til ásamt fleiri tönnum. Sagði hann orsaka verkinn og að ég ætti að láta fjarlægja hann.
Tók engar röntgen myndir. Er ekki venja að taka röntgen myndir þegar maður er í skoðun? Hún sagði tennurnar vel hirtar. Og bar flúor á sem ég síðan átti að skola af. Þetta kostaði 7500 kr og tók innan við 20 mín. Þetta var fyrsta og eina skipti mitt hjá þessum tannlækni og verri þjónustu hef ég aldrei fengið. Ég var líka fegin að komast út án þess að hún gerði einhvern meiri skaða. Ég er ennþá með tannskemmd sem mig verkjar í og nú verð ég að finna annan tannlækni til þess að láta laga. Mér leið eins og ég hefði lent í tannlækna-peningaplotti.

Er þetta eðlilegt? Hafið þið lent í svona? Hafið þið reynslu af þessum tannlækni?