Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

5 þáttur í 3 seríu?? Hvenær (2 álit)

í Sápur fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hvenær kemur 5 þátturinn í 3 seríu út? Það stendur ekki á epguides.com nema að 6 þáttur kemur 10.nóv Er sem sagt “hlé” núna?

NP-205 millikassi til sölu (0 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Er með np-205 millikassa og sjúskaða 727 sjálfskiptingu 3 þrepa, fæst fyrir lítið eða í staðinn fyrir eitthvað sniðugt dót. Ásgeir 896 8969 jeppakall@hotmail.com

Góður jeppaleikur!!! (0 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum, 9 mánuðum
http://www.leikjanet.is/?gluggi=leikir_spila&leikur=235 Snilldar leikur fyrir jeppakalla!

Queens of the stonage voru MIKLU betri!!! (13 álit)

í Rokk fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Foo Fighters stóðu mjög vel en QOTS voru bara MIKLU öflugri og stálu að mér fannst flestu af FF!

Vantar aðstöðu fyrir jeppa (0 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Mig vantar einhvern stað þar sem er þak og veggir og rúmar 44" kvikindi, má ekki vera útá landi(s.s bara á rvk svæðinu) og má ekki vera dýrt! Skoða ALLT!! Vantar sem FYRST! Ásgeir s: 896 8969 Email: jeppakall@hotmail.com

36" Jeep Cherokee til sölu (0 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Verð 160.000 kall Cherokee Laredo 87, 4L ssk. 36" mudder, 4.11:1 hlutföll, ný málaður og tekinn í gegn á boddý, ryðlaust kvikindi, green síja (svona kraft skiluru), loftdæla, díoðuljós í skiggni (geggjað flott) ofl. Þarfnast loka frágangs fyrir skoðun (boðun í skoðun), skipta þarf um vatnsdælu og handbremsubarka öðru megin. Verð 160.000 kall eða bara bjóða!! Verður að seljast strax!!! Einar Ásgeir Kristjánsson, Sími: 866-0734 einarak@visir.is

Sin City lög (11 álit)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Veit einhver hvaða lag er verið að spila í trailernum á Sin City og líka hvaða lag er með bassanum í myndinni, þetta kom minnir mig í endanum á myndinni.

Dodge Ram charger STOLIÐ!!! (9 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Nú er búið að stela Dodge jeppa, þetta er 86 módelið, stór djöfull á 33" dekkjum, dökkgrár að lit og með filmur allan hringinn. Það eru áberandi límmiðar á honum eins og Herra Möller, Brim og Pólýhúðun og fleirri. Númerið er IE-046…ef þið sjáið hann þá hringiði í mig Ásgeir s: 896-8969. Þessi maður mun ekki sjá dagsljós aftur ef hann skilar ekki bílnum STRAX og óskemmdum!

Check this out! (4 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Er hægt að nauðga fjöðrunarkerfi meira en þetta? nei ég bara spyr…tjékkið á þessu : http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1317 vaaaaaa….fáir amerískir þarna…mest rangerover og patrol og jú ein toy :D kv, Geiri Grrrraði

Pústkerfi! (15 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Jæja…nú er ég að fara að fá flækjur í dolluna mína, fyrir þá sem vita það ekki þá er þetta Scout með V8. Á ég að fá einhverja litla ljóta beygjuvél lánaða, kaupa efnið sjálfur? eða á ég að fara eitthvað og láta gera þetta? Ég hef talað við sigga í BJB og hann bauðst til að gera þetta fyrir 18.000kall sem mér finnst vera frekar mikið miðað við það að það er engin beygja nema ein stór….pústið kemur út fyrir framan afturdekkið þannig að þetta er ekki nema svona 3 metra langt hvoru megin. Ég...

ástæða til að kætast? (8 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Sæl veriði, Jæja þar sem ég hef ákveðið að sniðganga að öllu leyti vefsíðu ferðaklúbbsins 4x4 sem ég er meðlimur í þá vona ég að ég og fleirri færum okkur bara hingað og gerum þetta að “hot spot” þar sem við förum allir í sandkassaleik! Ég ætla að reyna að senda inn eitthvað bull hérna! En svona fyrst til að byrja með langar mig að spyrja ykkur hvað ykkur finnst um nýju síðu 4x4? Þá spyr ég aðallega þá sem notuðu gömlu síðuna, bera þetta saman! kv, Ásgei

Tékkar meistarar (1 álit)

í Hokkí fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Sá einhverjir leikinn í nótt? Ég er búinn að horfa á undanúrslitin og úrslitaleikinn í nótt og djöfull var þetta spennandi leikir. Úrslitaleikurinn byrjaði vel en Kanada menn voru frekar slappir og töpuðu 3-0

Nýja lagið með The White Stripes (2 álit)

í Rokk fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hafiði heyrt það ? Helvíti gott, frekar stutt en mjög gott. The White Stripes - Blue Orchid

sama könnunin ? (5 álit)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Var hin ekki nógu góð? Þurfti endilega að vera svarmöguleikinn “Bond suckar” og fleiri? Eða er þetta bara einhver villa…

Hin hliðin á Petr Cech (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum
Ég vildi bara benda mönnum á þetta sniðugt viðtal sem allir ættu að skoða hjá einum besta markmanni í heimi

Spá fyrir meistaradeidinni í kvöld (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum
Ég spái að Juventus taki þetta 2 eða 3-0 örruglega á móti Liverpool PSV tekur svo svona öskubuskuævintýri á þetta og vinnur 2-1

Nýji Golf GTi var að deyja í gær :( (7 álit)

í Bílar fyrir 19 árum
samkvæmt þessu þá er fyrsti VW Golf GTi 2005 árgerð á landinu dáinn! Hann ákvað að keyra eins og brjálæðingur og missa sig og velta einhversstaðar í kópavoginum. Myndir voru teknar af staðnum: http://www.5aur.net/ Bílstjórinn var fluttur á slysadeild en ég held að það hafi ekki verið alvarlegt sem betur fe

Vitlaust bíó (1 álit)

í Sci-Fi fyrir 19 árum
Æ Æ greyin :)

Meistaradeildin miðvikudag (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum
Chelsea - Bayern Munchen : ég er mjög spenntur fyrir þennan leik, eins og flestir vita þá er Mourinho í leikbanni og verður ekki með í báðum leikjum. Lítið er um meiðsli hjá Bayern, Claudio Pizzaro en Roy Makaay verður væntanlega i byrjunaliðinu en hann er smá meiddur. Í Chelsea eru Ferreira, Robben og wayne bridge meiddir og Kezman er í banni. Þetta verður vonandi hörkuleikur kl 18:45 á Stamford Bridge Ég spái að þessi leikur fari 1-1 eða 0-0 san Síró slagurinn Mikil spenna er milli þessara...

Jose Mourinho kominn í bann (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum
Jose Mourinho hefur verið bannaður af hliðarlínunni í tveimur næstu leikjum Chelsea í meistaradeildinni og missir af báðum leikjonum á móti Bayern Munchen nema að hann afrýji auk þess þarf hann að borga 9000 punda sekt. Þetta kalla ég gleðifrétt

Grand Turismo 4 (8 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 1 mánuði
Er ekki hægt að gera nýtt save í þessum leik ?

Hvað var Beattie að spá ? (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Hvað var hann að spá ? Þetta var svo fáranlegt hjá karlinum. Ég held að hann fái svona 3 leikja bann eða meira fyrir þetta. Neglir Gallas niður á áttundu mínútu þótt að boltinn hafi verið langt frá. Ég skil ekki afhverju hann gerði þetta, bara heimskulegt.

endilega svarið ef þið vitið (1 álit)

í Wolfenstein fyrir 19 árum, 3 mánuðum
vitiði hvort maður geti dlað 1944 forest frá íslenskum netþjóni ?

Netfrelsisumræða í Íslandi í dag 5.janúar (3 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Jæja þá er ballið byrjað aftur og umræða var um netfrelsið í Íslandi í dag þar sem Hreinn Beck talsmaður Netfrelsis á Íslandi og Hallgrímur Kristinsson framkvæmdastjóri SMÁÍS voru að ræða málin. Mér fannst Hreinn koma mjög vel fram og greinilega maður sem er með eitthvað í kollinum, en svo er önnur saga með hann Hallgrím “vin” okkar. Hallgrímur kom að mínu mati mjög illa út í þessari umræða, vegna þess að hann var sífellt að væla yfir því að hann þekki ekki málið eða að hann hafi ekki...

help (4 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 4 mánuðum
ég er í einu missioni með $ merkinu þar sem wu zi spilavítið er og ég kemst ekkert áfram í því . Manni er sagt að fara í einhverja risa flugvél á flugvellinum og fara svo hjá einhverri “dam” eða stíflu en ég sé ekkert þar og veit ekki rassgat hvað ég á að gera þarna . Einhver svo góður að hjálpa mér ?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok