Þetta er bara taugastrekkingur því að hún veit að Alan er betri en hún þegar kemur að viðskiptaráðabruggum … ég meina það þurfti ekkert minna en sameiginlegt átak ALLRA Spauldinga og allra íbúa Springfields til að stela völdunum af Alan hérna um árið!!! Aftur á móti var einn maður, þorparinn sjálfur, sem að gat einn síns liðs næstum snúið á Alex og stolið öllu af henni - bæði völdum, virðingu og peningum … eins gott að þá átti hún hauk í horni, það er að segja AM, en nú hefur hún brennt þær...