Ég ætla aðeins að skrifa um Susan og Karl. Mér finnst Karl vera ömurlegur að fara frá Susan eftir 30 ára hjónband. Það var bara engin ástæða fyrir hann að fara frá henni. Svo að hann vilji fá húsið finnst mér alveg afleitt. Það er bara ömurlegt af þeim að láta svona. Izzy veit alveg að hann fór frá Susan eftir að Karl varð hrifinn af Izzy. Susan er ekkertúin að vera neitt annað en góð við Karl. Þegar hann hélt framhjá henni með Söru þá fyrirgaf hún honum. Hann sér heldur ekki hvað Izzy er ömurleg (ennþá) að ljúga af honum með barnið. Af hverju getur hún ekki bara sagt honum sannleikann? Ég veit alveg að það getur verið erfitt. En það er líka erfitt að halda þessu leyndu mikið lengur þar sem hann er læknr og hlýtur nú að vita sitthvað um óléttar konur. En ef mér finnst það nú samt bara gott á hann að hann fái þetta í andlitið. Ég veit að ég er svolítið tilfinningasöm út í þetta. Ég bara lifi mig mjög mikið inn í þessa þætti.. ;)
Ef fólk væri ekki skrítið væri lífið ekkert skemmtilegt.. :)