Loksins komst Alex að því að Alan er laus úr fangelsinu. Jess!!! Ég get ekki beðið eftir að sjá hvað hún gerir. Svipurinn á henni var óborganlegur..hehe. Líka þegar Lillian saðgist hafa séð Alan. Alex hefur örugglega haldið að hún væri gengin af göflunum.

Og hvað ætli að Alan og Susan ætli sér með Nick?? Það verður sko eitthvað fróðlegt.

Svo var Ed að drekka. Óafvitandi. Hann á pottþétt eftir að lenda í bílslysi eða eitthvað álíka dramatískt.