Skiptir það máli? Ég er búinn að sýna fram á að Jesú, æðsti guð kristinna manna, hafi sjálfur beitt ofbeldi en samt sem áður virðast flest allir kristnir menn ekki taka því alvarlega, þ.e. þeir kjósa að hundsa þá hluta trúarritsins sem ekki samræmast siðferði þeirra. Því er það ekki trúin sem skapar siðferði okkar, heldur veljum við og höfnum þeim köflum sem okkur finnst góðir. Aðal spurningin er hins vegar hvers vegna múslimar hafna ekki sömu hlutum trúarrita sinna og kristnir virðast gera....