Ef allir gætu selt gamla draslið sitt þá myndu verðin á öllum hlutunum hrynja niður, enginn myndi kaupa neitt af vendor og það væri skítlétt að verða sér út um góðan gear án þess að hafa mikið fyrir honum. Það myndi bara skemma hagkerfið í Wow. Ég meina peningarnir spretta upp úr engu (drops, awards) og þá gengur ekki að þeir hlaðist bara upp endalaust. Þess vegna erum við með soulbound hluti, enchanting og ýmsar aðrar peningasugur. Leiðréttið mig ef ég fór með eitthvað vitlaust.