Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
ÞAÐ SEM BÖRNIN KENNA OKKUR (0 álit)
í Börnin okkar fyrir 23 árum
ÞAÐ SEM BÖRNIN KENNA OKKUR Það er skemmtilegra að lita út fyrir línurnar… Ef þú ætlar að lita á vegginn í stofunni, þá er betra að gera það bak við sófann… Það er ekki satt að Súpermann hafi alltaf borðað grænmeti þegar hann var lítill… Ef hundinum þínum líkar ekki við fólk, þá ætti þér ekki að líka það heldur… Jafnvel þó þú hafir dorgað á bryggjunni í 3 tíma og ekki fengið neitt nema þara og sólbruna á nefið, þá hefur þú það a.m.k. betra en ormurinn á hinum endanum… Stundum þarftu að taka...
Nafn og tegund... (18 álit)
í Hundar fyrir 23 árum
Mig langar að spyrja um soldið og gaman væri ef þið vilduð svara, bara uppá gamanið. Hvað heitir hundurinn þinn og af hvaða tegund er hann? Við fáum okkur labrador í vor, en getum ekki ákveðið nafn á hann. kveðja alsig
Hreyfimyndir - hreyfast ekki hjá mér (0 álit)
í Windows fyrir 23 árum
halló halló, það er mikið búið að spá og spekúlera og svitna yfir þessum vanda. Þannig er að ég er með síður inná barnaland.is og það eru myndir og svona til að skreyta síðurnar. Svo var ég í tölvu hjá systir minni og þá sá ég að á flest öllum síðunum, þar á meðal mínum, eru hreyfimyndir. En allt steindautt í tölvunni minni. NEMA hreyfimyndir sem koma í email, þær hreyfast hjá mér. Hvað er að?? Er hægt að laga þetta og þá hvernig?? Takk takk kveðja alsig
Kveðja alsig <a...
hreyfimyndir sem hreyfast ekki (1 álit)
í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 23 árum
halló halló, það er mikið búið að spá og spekúlera og svitna yfir þessum vanda. Þannig er að ég er með síður inná barnaland.is og það eru myndir og svona til að skreyta síðurnar. Svo var ég í tölvu hjá systir minni og þá sá ég að á flest öllum síðunum, þar á meðal mínum, eru hreyfimyndir. En allt steindautt í tölvunni minni. Hvað er að?? Er hægt að laga þetta og þá hvernig?? Takk takk kveðja alsig
Kettlingar drepnir... (4 álit)
í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hæhæ, nú á ég ekki kisu sjálf, en bróðir minn á læðu sem gaut 3 kettlingum (annað got hjá henni) um daginn og þeir brögguðust bara vel og læðan ánægð með lífið. En í morgun voru allir kettlingarnir dauðir. Það var búið að bíta þá alla á hálsinn og blóð út um allt. Gæti verið að fress hafi getað gert þetta, það var nefnilega opinn gluggi þar sem læðan gat farið út og inn að vild. Læðan er svört og hvít, en það fundust gráar hárflygsur inni hjá þeim. Veit einhver um dæmi líkt þessu og hvaða...
Greiðslumat (9 álit)
í Heimilið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvað er eðlilegur tími fyrir greiðslumat í banka?? Við erum búin að bíða í viku, þurfum við að bíða lengi enn??? Ef einhver veit það væri gott að fá svar. kveðja alsig
Labrador Retriever (8 álit)
í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hæhæ, við erum búin að vera í hunda hugleiðingum undanfarið. Okkur langar að fá okkur Labrador Retriever, eða einhverja blöndu með labrador eða Sheffer. Veit einhver hvað Labrador kosta hreinræktaðir, eða þá hvort blandaðir hundar eru gefnir eða seldir? Við erum eiginlega ákveðin í að fá okkur hund, tímasetningin er ekki alveg á hreinu. Við flytjum sennilega í okkar eigið einbýlishús mánaðarmótin maí-júní, ef þú veist um hvolp sem yrði tilbúin til afhendingar eftir þann tíma máttu endilega...
börnin okkar (0 álit)
í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
halló, ég er að velta fyrir mér hvort einhver hér á efni um börnin okkar og fleira eins og til dæmis… mamma er… pabbi er… þjóðsagan um engilinn og fleira svoleiðis. Ég er að dunda mér við að safna því saman á síðuna mína hér á huga. Kíkið á það og kannski þið lumið á einhverju sem hægt er að bæta inn. Bara hugmynd..! kveðja alsig http://kasmir.hugi.is/alsig/
Fyrir sumarið (0 álit)
í Ferðalög fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Datt í hug að benda ykkur öllum á góða síðu fyrir þá sem eru að byrja að plana sumarfríið. Borgar sig að athuga málin snemma til að vera öruggur um sumarfríið. http://islandia.is/bvth/ kveðja alsig
Límmiðar á ísskáp (6 álit)
í Heimilið fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Halló, getur einhver sagt mér hvernig hægt er að fjarlægja límmiða af ísskáp svo gott þyki… s.s. þannig að ekki verði ljótar límklessur eftir. Krakkarnir hafa fengið að líma á, en nú eru þau orðin eldri og hafa sjálf orð á því hvað þetta eru ömurlegir límmiðar, tommi og jenni og eitthvað svoleiðis :) takk takk kveðja alsig
SKÖTUFÝLA... (1 álit)
í Heimilið fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég hef bara aldrei lent í þessu… við vorum með skötu á þorláksmessu, eins og alltaf, og núna losnum við bara ekki við fýluna úr íbúðinni. Maður gengur á vegg þegar maður kemur að utan. Við búum reyndar í lítilli blokkaríbúð núnam, og vorum með allt opið uppá gátt þegar við elduðum skötuna. Við erum búin að taka niður gardínur og þvo, skúragólf og nota allskonar ilmdót og kerti en ekkert virkar. Hvað er hægt að gera?!?!!? kveðja alsig
barnaskólar á selfossi? (3 álit)
í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Veit einhver hér hvort og þá hvernig skiptingin er í skólana á Selfossi?? Fer það eftir hvar maður býr í hvorn skólann barnið fer?? Takk takk kv alsig
Gárar/matarskammtari (1 álit)
í Gæludýr fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hæ, mig langar að athuga hvort einhver hafi hugmynd um hvar hægt sé að fá matarskammtara í búr fyrir 6 gára. Svona matarskammtara sem stendur á botni búrsins. Ég sá mynd af svona græju um daginn, en veit ekki hvort þetta fæst hérna einhversstaðar. takk takk kv alsig
kisur og sandkassar(barna) (1 álit)
í Gæludýr fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Hæhæ, ég er í smá vandræðum. Ég er með sandkassa í garðinum hjá mér og hann fær ekki að vera í friði fyrir köttunum í hverfinu. Ég hef alls ekkert á móti kisum, nema þetta. Það er biðröð á morgnana eftir að komast í kassann, samt er ég með net yfir sem kostaði 6000 kall sérsaumað yfir kassann. Þeir bara spræna ofan á netið og það lekur svo niður í sandinn. Er ekki til eitthvað efni sem fælir þá frá, eitthvað sem virkar. Plís látið mig vita ef þið vitið um eitthvað sniðugt ráð sem dugar. Takk...
Gárar - varp (1 álit)
í Gæludýr fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Er einhver hér sem hefur hugmynd um hvernig gárar haga sér í tilhugalífinu/varpi og hvað þetta tekur allt langan tíma?? Við erum með karl og kerlingu í búri og það er búið að vera stanslausar uppáferðir mörgum sinnum á dag í 12 daga, þau eru með varpkassa en fara aldrei í hann. Gera þau þetta sér til gamans eða eru þau að rembast við að verpa??? Endilega fræðið mig ef þið vitið eitthvað. Kveðja, alsig
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok