Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hverjir nota ennþá (8 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ég hef verið að spá í þessu í soldinn tíma… Ég er ennþá alveg gallharður C64 spilari, og er að spá í það hvort það séu einhverjir Hugarar sem nota ennþá (eða bara eiga og halda fast í) gömlu vélarnar sínar. Þá er ég að tala um tölvur frá 80's og early 90's, eins og t.d. C64, Spectrum, Atari, Amiga, NES, SNES, SEGA, Amstrad, Pong ;-) o.s.frv. Endilega tjáið ykkur :-)

Retro-Land (2 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Snilldar forum um allar helstu retro tölvurnar. [url= http://retropolis.proboards40.com/index.cgi]Retro-Land

Nú gengu feministarnir alltof langt! (50 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þeir sem horfðu á fréttirnar áðan tóku kannski eftir umfjölluninni um dagbækurnar sem Oddi gaf út, en feministagerpin, sem vilja allt banna, fengu þá til að hætta dreifingu á þeim vegna málshátta sem þóttu niðrandi gagnvart kvenfólki. Þeir sem horfðu ekki á fréttirnar geta séð fréttina á ruv.is O.k. Ég skal viðurkenna það að “Þrætugjörn kona er sem sífelldur leki” er ekki beint það uppbyggilegasta, en þetta er málsháttur, þetta orðatiltæki og þar af leiðandi partur af okkar menningu. Það sem...

Compettition pro joystick (1 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Vissi ekki hvert ég átti að setja þennan kork en fannst þetta besti kosturinn. Er hægt að kaupa þennan joystick hér á klakanum einhversstaðar og hvað kostar hann?

Grand Theftendo (GTA 3 tribute) fyrir NES (3 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Grand Theftendo er nokkurskonar GTA 3 klón (eða tribute leikur) fyrir gamla NES. Leikurinn er ennþá á framleiðslustigi, en á víst að innihalda allt sem var GTA 3, nema að hann spilast í 2d top-down view, og hann verður ókeypis. Gæti verið skemmtilegt fyrir ykkur Nintendo áhangendur ;-) http://www.grandtheftendo.com/

Elite fyrir GBA (0 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Var að finna Elite fyrir ykkur GBA eigendur. Og hann er meira að segja frekar vel heppnaður :-D Þið getið sótt hann á http://www.geocities.com/quirky_2k1/

Doom 3 (5 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hvenær kemur hann hingað?

Kaillera (3 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hefur einhver hérna prófað Kaillera?? Fyrir þá sem ekki vita að þá er Kaillera forrit sem opnar möguleikann á online spilun með Emulatorum. Þannig að þú getur t.d. spilað 2 player Mario við vin þinn í Amsterdam ;-) Allavega, hefur einhver Hugari prófað Kaillera og er einhver íslenskur server fyrir hann??

Könnun (0 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Það gleymdist að setja Amiga CDTV inn á könnunina, en það var fyrsta leikjavélin með geisladrifi sem standard búnað. Frekari upplýsingar <a href="http://encyclopedia.thefreedictionary.com/Amiga%20CDTV">HÉR</a

Mercury Topaz '88 (Bilaður) (3 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ætla að fara að losa mig við Mercury Topazinn minn. Býst við því að honum verði fargað, en þar sem það er svo mikið heilt í honum ákvað ég að það væri sniðugt að athuga hvort það væri einhver hér sem gæti notað hann. Það sem er <b>bilað</b> í honum er: Vatnsdæla Bremsudæla í hægra afturhjóli Bakkgír í skiptingu (Virkar en það kemur smá högg í hann ef maður gefur mikið í) Off takkinn í miðstöðinni (Hann virkar alveg, það er bara vesen að fá miðstöðina aftur í gang ;-) Og rafmagn inn í bílinn...

"Góð grein.... (3 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
… Þó svo að ég hafi ekki lesið hana." Hvað sér maður þetta oft á huga? Hvernig getur einhverjum fundist grein góð ef hann eyðir ekki tíma í að lesa hana? Er það ekki frekar merki um að greinin hafi verið léleg eða óáhugaverð?

Vantar Commodore 64 stöff (4 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Vonandi gengur eitthvað að auglýsa hér, en málið er að mig vantar Commodore 64 tölvur og fylgihluti (kassettutæki, stýripinnar o.s.frv.). Þannig ef einhver á, eða veit um einhvern sem á svona græju sem er að rykfalla endilega sendið mér PM.

Ninja Gaiden ritskoðaður (1 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum
Skrambinn.. Ninja Gaiden verður ritskoðaður fyrir evrópumarkað, t.d. verður ekki hægt að afhausa vondu kallanna :-( http://www.gamespot.com/news/2004/04/23/news_6094373.html

Metal Gear (5 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum
Metal Gear kom fyrst út á MSX 2 Sú vél var frekar stór í Asíu og austur-evrópu, en ekki í okkar “vestræna” heimi

Deus Ex 2 (3 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 1 mánuði
Hvernig er það, er eitthvað að marka þessa útgáfudaga?? Fyrst er það skráð á BT.is að hann hafi átt að koma 6. feb, svo sér maður dagsetningarnar 6. mars í Gametíví og 5. mars hér á Huga.. Á helvítið ekkert að fara að koma?

R-type Final (0 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Hann kemur út 3. feb úti, en veit einhver hvenær hann kemur á klakann??

Sony PSP (2 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Sony loksins að fara að gefa út handheldna leikjatölvu! http://www.gamespot.com/all/news/news_6072659.html

Skoðannakönnun (8 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Zelda Ocraina of time Ég ELSKA hann, og þá er vægt til orða tekið! Hann er ágætur Mér þykir ósköp vænt um hann… Hvaða leikur er það? Held það, hef aldrei prófað Hann er mesta snild sem uppi hefur verið! Þessi könnun er ekki marktæk, þar sem enginn neikvæður svarmöguleiki er fyrir hendi. Þannig að ef mér finnst leikurinn sökka þá get ég ekki sagt það í könnuninni

Commodore 64 (5 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 4 mánuðum
HAHA! Fann hana loksins, gamla Commodorinn minn! Og hún virkar meirað segja ennþá :) Keypti hana held ég 86 og á í kring um 200 leiki á hana, þarf af einn á kubb, restin er á kassettum! Snilld Eru einhverjir fleyri gamlir nördar þarna eins og ég sem eiga ennþá eitthvað af þessum gamlingjum með kassettutæjum??

Manhunt (0 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Er einhver búinn að spila Manhunt eitthvað.. Ef svo er… hvernig er hann??

Verum góðir við stelpurnar okkar (14 álit)

í Half-Life fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég er búinn að spila CS í soldinn tíma núna, með hléum þó, telst nú örugglega ekki með betri spilurum á landinu. Hálfgerður núbbi ennþá :) Allavega, að þá finnst mér eitthvað vera að aukast af stelpum núna á public serverum, sem er ekkert nema gott mál. Gaman að sjá að þetta margrómaða “stráka” áhugamál er loksins farið að breiða út armanna, og ná til stelpnanna. En ástæðan fyrir því að ég skrifa þessa grein er framkoma margra spilara við þessar stelpur inná public serverum, sem oft á tíðum...

Geisladrifið farið (5 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Keypti nýjan Xbox fyrir tæpum mánuði og geisladrifið er strax farið. Það skal tekið fram að vélin hefur verið sama og ekkert notuð og öll meðferð til fyrirmyndar. Er þetta eitthvað sem ég má búast við að eigi eftir að gerast ítrekað, eða er ég bara óheppinn??

deus ex 2 (7 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hey.. veit einhver hvenær DX 2 kemur til landsins??? Veit að hann á að koma 2. des. úti
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok