Ætla að fara að losa mig við Mercury Topazinn minn. Býst við því að honum verði fargað, en þar sem það er svo mikið heilt í honum ákvað ég að það væri sniðugt að athuga hvort það væri einhver hér sem gæti notað hann.

Það sem er <b>bilað</b> í honum er:
Vatnsdæla

Bremsudæla í hægra afturhjóli

Bakkgír í skiptingu (Virkar en það kemur smá högg í hann ef maður gefur mikið í)

Off takkinn í miðstöðinni (Hann virkar alveg, það er bara vesen að fá miðstöðina aftur í gang ;-)

Og rafmagn inn í bílinn er eitthvað klikkað. Það kviknar ekki á neinum ljósum inn í honum og útvarpið virkar ekki(kemur bara lágt surg). Aldrei nennt að tékka betur á þessu.

Allavega, ef þið hafið áhuga eða vitið um einhvern sem vantar svona sendið mér þá skilaboð hér á huga fljótt því ég býst við því að hann fari á morgunn.

Ó, já. Ég fæ 10.000 fyrir að farga honum þannig að þið verðið að bjóða betur.