Ég er búinn að spila CS í soldinn tíma núna, með hléum þó, telst nú örugglega ekki með betri spilurum á landinu.
Hálfgerður núbbi ennþá :)

Allavega, að þá finnst mér eitthvað vera að aukast af stelpum núna á public serverum, sem er ekkert nema gott mál. Gaman að sjá að þetta margrómaða “stráka” áhugamál er loksins farið að breiða út armanna, og ná til stelpnanna.

En ástæðan fyrir því að ég skrifa þessa grein er framkoma margra spilara við þessar stelpur inná public serverum, sem oft á tíðum er til háborinnar skammar.
Hef ég allt of oft orðið vitni að ítrekuðum leiðinda athugasemdum og illkvitni gagnvart þessum stelpum, sem oft á tíðum leiðir til þess að þær gefast upp og hætta spilun.
Þetta á auðvitað alls ekki við um alla stráka í CS, en þeir taki þetta til sín sem meiga.
Stöndum nú með stelpunum okkar og látum svörtu sauðina á public serverunum ekki komast upp með þessa framkomu, þetta verður eflaust mun litríkara og skemmtilegra áhugamál eftir því sem það verður meiri fólksblöndun í þessu.
Með kveðju
Gorkurinn

CS Timburrsveinn/Gronk