Eru engnir hér sem áhuga hafa á stangaveiði. Hér grúir allt í skottveiðigreinum, sem reyndar er ágætt út af fyrir sig en gaman væri að auka flóru umræðna hér á veiðispjallinu. Það væri t.d. tilvalið að skiptast á skoðunum og fróðleik um Þimgvallavatn sem er gætt óendanlega miklum töfrum og margir með mismunandi aðferðir og flugnategundir sem vert væri að fræðast um. Ég veiddi í fyrsta skiptið, að ráði, síðastliðið sumar á Þingvöllum og komst að því að það er jafn mismunandi og það er stórt....