Þú vilt staðsetja rótina af 2 á talnaásnum. Í stað þess að ganga frá 1 að rótinni að 2 og fara alltaf skrefi nær og nær geturðu líka byrjað með bilið 1,41 og 1,42 svo smækkað það í 1,414 og 1,415 og með þessu móti haldið endalaust áfram. Þetta er þó engin lausn frekar en að ganga eftir ásnum. Bestu lausnirnar við þessu verkefni sem mér dettur í hug er að teikna þríhyrninginn, eða skilgreina talnaásinn með því að velja fyrst 0 og svo rótina af 2. Þá veistu nákvæmlega hvar hún er. ggp