Ég hef lengi ætlað mér að skrifa hérna grein um þessa hljómsveit en aldrei komið mér til verks…þar til nú. <b>Meðlimirnir</b> Bandið samanstendur í raun af þremur einstaklingum, en þeir eru: Michael Anthony - fæddur 20. júní 1954, spilar á bassa, Alexander Arthur Van Halen - fæddur 8. maí 1953, slær á trommur, og Edward Lodewjik Van Halen - fæddur 26. janúar 1955, spilar á gítar (og alls ekki illa!) <b>Sagan</b> Michael Anthony ætlaði sér að ganga í fótspor föður síns og fór að læra á...