Mín reynsla er sú að því eldri sem maður verður því meira er um stefnumót. Þegar fólk er búið að standa í balla- og barabransanum í langan tíma er algengt að það vilji persónulegri nálgun og fari á stefnumót. Þá er algengt að fara á veitingahús eða bar, fá sér mat og drykk og spjalla. Þessu á, að mínu mati, ekki að fylgja nein skuldbinding og eftir þetta fyrsta stefnumót tekur maður ákvörðun um hvort maður vill eitthvað meira. Þetta er ekki flókið og er mikið stundað í Reykjavíkurborg. Ég...