Ég ætla að byrja á því að lýsa fyrir ykkur skemmtistað:

* Risa stórt dansgólf. Svipað og á Hótel Íslandi
* Þvílíkt þétt hljóðkerfi
* Lasershow. Það flottasta sem til landsins hefur komið
* 7 metra lofthæð
* 800 manna leyfi
* 6 Róbótar eins og á stærstu klúbbunum erlendis!
* Innréttingar, litir og húsnæði í ‘70-’80 stíl!

Ég gæti haldið lengi áfram. Ég er að tala um skemmtistaðinn Nasa sem hefur utan um sig húsnæði og tækjabúnað sem við höfum áður ekki séð á skemmtistað á Íslandi.

Fullkomið???

Ég var þar í kvöld…tónlistin þar og stefnan í þeim málum…Guð minn góður. Framhald á Sportkaffi.. Superman með Ladda, Sálin, Popp- Danslög …legg það ekki á þig að halda áfram.

Staður sem hefði geta orðið…held ég að sé deginum ljósara að verði aldrei…ekki með þessari stefnu!!!

Mestu vonbrigði skemmtanalífs landsins þetta árið!!!