Ég hef oft verið að skoða fólksíður og fleiri síður þar sem er verið að fjalla um unglingastjörnur. Oftar en ekki sé ég að ekkert er fjallað um Evan Rachel Wood, en hún lék snilldarleik í kvikmyndinni Thirteen, að mínu mati betur en Lohan, Duff og Olsen hafa gert samanlagt. Ég ætla aðeins að fjalla um hana hérna, því það eru margir sem vita ekki einu sinni hver hún er. Evan Rachel Wood fæddist 7. september 1987 í Raleigh í Norður-Carolina. Foreldrar hennar heita Ira og Sara og á hún líka tvo...