93 og uppúr er allt annar bíll en 89. Það er önnur vél, annar gírkassi betri fjöðrun og tannstangarstýri í fyrsta sinn í F body. Annars hef ég keyrt eldri bílinn beinskiptan og fannst það bara allt í lagi, þetta hefur verið eitthvað bilaður bíll sem þú prófaðir. Eldri bílarnir voru með Borg og Warner T5 sem er sami kassi og í Cosworth Sierra, Blazer S-10, Mustang ofl.