Þetta voru, að ég held, þriðju tónleikarnir sem ég fer á á þessu ári. Travis, Quarashi og svo nú Coldplay. ´ Ég ætlaði ekkert á þessa tónleika, ekki af því að ég fíla ekki Coldplay heldur meira að ég hef svo lítið hlustað á þá, en það var henni Sunnu vinkonu minni, sem enginn hérna þekkir ábyggilega, að ég fór á þessa tónleika. Ég get sko sagt fyrir minn part að þessir tónleikar eru án efa þeir bestu sem ég hef farið á í höllinni. Ég vona bara að þeir komi aftur :D