Ég vil bara taka það fyrst fram að ég er ekki viss hvort þetta á heima hérna eða á korknum svo að það verði ekki einhver skítköst. Ég er búin að eiga kisuna mína hana Trítlu í næstum tvö ár og hún hefur alltaf verið útiköttur. Nú er ég að fara að flytja frekar langt í burtu og þá þarf kisi að venjast nýju umhverfi. Ég á kattaról og fór með hana oft út í henni þegar hún var kettlingur, er það gott að fara með hana fyrstu vikuna út í henni? Hún er heldur ekkert svakalega hrifin af henni og...