Sælar! Ég er starfsmaður í Kattholti og ætti kannski að geta gefið þér nokkur ráð, sem gætu gagnast. Pæling 1: Það er ósköp eðlilegt að kettlingar fari á spena hjá eldri köttum, þau fara mas stundum á spena hjá fressum og hundum. Þetta er einstaklingsbundið eftir köttum en oftast eldist þetta af þeim. Þar sem þetta byrjaði þegar læðan byrjaði að breima, þá hefur læðan eflaust hvatt kettlinginn til þess og fá þannig “útrás” fyrir móðureðlinu, þar sem hún varð ekki kettlingafull. Þótt þetta...