jájá, ég er ekkert að fara að segja að boðorðin séu bara bull, langt því frá. Ég hef bara gaman af því að velta svona hlutum fyrir mér, hvaðan allt þetta kemur, þá á ég við þennan hlut sem við köllum trú eða trúarbrögð, biblíuna, Guð, Jesú Krist, Kirkjuna, presta og páfa. Sem eru allt hlutir sem hafa haft gífurleg áhrif á okkar líf og tilveru á þessari jörð. Spurningin með boðorðin, þau eru til, það er staðreynd. Hvernig þau urðu til er annað mál. Móses uppi á fjalli, þar sem enginn sá til,...