Ath. Þó þú búir á sérhæð þá þarf samt samþykki þeirra sem nota útitröppurnar með þér að þinni íbúð, því það telst sameign sem hundurinn þarf að nota til að komast inn til þín. Frekar fáránlegt. kv Doppa
Að fá sér hvolp þýðir mikla vinnu, þú gefur honum allan þinn tíma og þú lítur ekki af honum meðan verið er að húsvenja hann því um leið og þú lítur undan augnablik þá pissar hann eða kúkar um leið (alveg ótrúlegt) og það getur tekið vikur jafnvel mánuði að húsvenja þá. Hvolpar eru eins og ungabörn, enda eru þeir svo sem ekkert annað en óvitar fyrstu mánuðina og þurfa umönnun sem slíkir þann tíma sem þeir eru að stálpast og læra á umhverfi sitt. Þeir þurfa að borða 3-4 sinnum á dag í fyrstu...
Halló Ég var að skrá minn hund um daginn, bý í sérhæð ( í Reykjavík) með sérinngangi, en þurfti að fá samþykki íbúá á næstu hæð, þar sem tröppurnar upp að dyrum beggja íbúða teljast sameign. kveðja Doppa
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..