Þú hefur líklegast skipt yfir í enskt lyklaborð (t.d. með því að ýta á alt-shift takkana saman). Ef þetta er málið, þá þarftu bara að ýta á alt-shift aftur til að skipta til baka í íslensku. Svo mæli ég með því að henda út enska lyklaborðinu, nema þú hafir sérstaka ástæðu til að nota það? Til að henda því út ferður í Control Panel, velur Regional and Language Options, ferð í Languages flipann og smellir á [Details...]. Þar velurðu [EN] English og smellir á [Remove].