Í fyrsta lagi geturðu líklega bent á að flest rök gegn tölvuleikjum eiga einungis við ofnotkun, en ekki eðlilega notkun. T.d. er ekkert óeðlilegra að spila góðan tölvuleik með félögunum, en að taka t.d. eina langa skák, eða spila eitthvað spil. Ég er sem sagt að tala um tölvuleiki sem áhugamál, en ekki sem lífsstíl. Tölvuleikir hjálpa ungum krökkum að þjálfa samhæfingu huga og handa (gætu eflaust þjálfað fætur líka, ef einhver stýritól væru til fyrir þá - reyndar er til svona dansmotta fyrir...