Þessi aðferð er auðvitað mun einfaldari, en er líka miklu mun hægari, þar sem þú marglest strenginn aftur og aftur. Þar sem svona dæmi eru hinsvegar frekar einföld (stuttir strengir) þá mælist ekki eins mikill munur og ef strengurinn væri stærri - en sé ítrað nógu oft, þá ætti að koma fram umtalsverður hraðamunur á þessum 2 aðferðum. En, eins og ég sagði áður, þá eru dæmi sem reiknuð eru í þessum reiknivélum oftast frekar stutt og því er allur tímamunur upp á einhverjar millisekúndur (eða...