Mér finnst þetta vera mjög ljótt orð en það er notað mjög mikið af ungu fólki í dag.

Þetta er þýðing fyrir enska orðið “meeting”.

Er þetta orð til í orðabókum?

-Ef ekki þá legg ég til að við finnum nýtt orð fyrir þetta fyrirbæri/atferli (meeting (to meet someone)).

“Fundur” er of formlegt og “samkoma” líka. Það verður að vera eitthvað hipp og kúl, mjúkt í munni og þægilegt að segja það.

Hittingur.

Segið hvað ykkur finnst.