Ég er búin að vera að spila Sims í mörg ár og stundum leiðist mér þegar mér dettur ekkert nýtt í hug fyrir Simsana að gera (ég hlakka svo til þegar Sims 2 kemur út). Þegar mér leiddist einu sinni datt mér í hug að gera þá mestu fjölskylduflækju sem ég hef nokkru sinni séð. Þá gerði ég Glace-fjölskylduna. Til að geta flækt málin almennilega gerði ég fjögurra manna fjölskyldu. Allt voru það fullorðnir. Þau hétu Matt, Susan, Dave og Mary. Þegar þau fluttu inn lét ég þau strax fara að kynnast....