Ég er búin að vera að spila Sims í mörg ár og stundum leiðist mér þegar mér dettur ekkert nýtt í hug fyrir Simsana að gera (ég hlakka svo til þegar Sims 2 kemur út).
Þegar mér leiddist einu sinni datt mér í hug að gera þá mestu fjölskylduflækju sem ég hef nokkru sinni séð. Þá gerði ég Glace-fjölskylduna.
Til að geta flækt málin almennilega gerði ég fjögurra manna fjölskyldu. Allt voru það fullorðnir. Þau hétu Matt, Susan, Dave og Mary.
Þegar þau fluttu inn lét ég þau strax fara að kynnast. Fljótt kom í ljós að engum líkaði vel við Susan og þess vegna var hún alltaf útundan.
Fyrst urðu Matt og Dave ástfangnir. því næst Matt og Mary. Dave náði sér líka í tvær kærustur utan fjölskyldunnar. Allir hötuðu Susan því hún var alltaf í vondu skapi. Hún neyddist alltaf til að þrífa eftir hin og var alltaf að pirra þau útaf því að henni leiddist það svo mikið. Enginn gat svo mikið sem reynt að kynnast henni því hún var alltaf svo mikil tík og fór alltaf að stríða þeim (mjög þroskað).
Einn daginn þegar Matt og Susan voru í hörkurifrildi yfir uppvaskinu hringdi síminn. Dave svaraði og það var ættleiðingarstofan að bjóða þeim að ættleiða barn. Dave samþykkti það og þá bættist Dorothy í fjölskylduna.
Ég er alls ekki viss hverjir foreldrarnir eru. Samkvæmt Sims reglu verða að vera tveir foreldrar og það vildi svo til að í þessu húsi voru tvö pör. Það var strax hægt að strika Susan ú því allir hötuðu hana. Matt er annað foreldrið en ég er ekki viss hvort hitt foreldrið er Mary eða Dave.


Ef einhver veit hverjar reglurnar eru þegar kemur að ættleiðingu hjá Simsunum eru (t.d. hvort þau verða að vera 100% ástfangin eða hvort þeim verður að líða vel) þá má hann endilega segja mér það svo ég geti komist að því hvert hitt foreldrið er.

DALA