Sautján ára breskur framhaldsskólanemi, Adam Hughes, hafði ekki verið lengi í starfskynningu í prentsmiðju þegar hann tók sig til og endurskipulagði sölu- og markaðsmál fyrirtækisins og bjargaði því þar með frá gjaldþroti. Hughes kom upplýsingum um fyrirtækið á Netið en það hafði áður eingöngu notast við gamaldags aðferðir eins og síma og bréfaskipti. Þessi breyting var svo áhrifarík að prentsmiðjan fékk stórar pantanir um leið frá Bretlandi og Bandaríkjunum. Martin Mulligan,...