Gott ráð er að teikna bara og teikna og gleyma strokleðrinu. Reyndu að finna þér eitthvað til að teikna (epli, vasa, blóm t.d.) og skyssaðu það hratt upp nokkrum sinnum, án þess að stroka út. Notaðu marga hluti til að hafa þetta fjölbreytt. Gott er líka að fara bara niður í bæ og teikna fólk, eða jafnvel að fara niður í fjölsk.- og húsdýragarðinn og skyssa þar dýr.