Sonur minn er 15 mánaða og er alveg einstaklega góður í að sofna á kvöldin. Hann þekkir rútínuna: borða kvöldmat, fara í bað, fá pelann og leika smá og fara svo í rúmið. Ég set hann í rúmið sitt og loka hurðinni og hann er sofnaður eftir smá tíma. Mér fannst þetta hálf grimmdarlegt fyrst en núna kemur þetta sér oft vel. Ég hef heyrt að það stressi börnin að sitja yfir þeim meðan þau sofna, þau eru alltaf að tékka hvort einhver sé á staðnum eða allir farnir. Ég held að rútínan skipti öllu...