Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Nauðgun?!

í Tilveran fyrir 11 árum, 9 mánuðum
  Mér þykir þú óttalega þröngsýnn á hvað nauðgun er. Allar nauðganir eru ekki eins, það er t.d. voðalega erfitt að berjast um og neita ítrekað þegar það er búið að byrla þér lyf, sumar konur fara einfaldlega í sjokk og trúa því ekki að þetta sé að gerast fyrir sig, fara einhvert annað í hausnum á meðan á stendur og berjast því ekkert um.   Það er ekki öllum nauðgað eins.

Re: Nauðgun?!

í Tilveran fyrir 11 árum, 9 mánuðum
Nei reyndar hófust Druslugöngurnar erlendis og voru teknar upp hérlendis. Þú talar um þetta eins og saklausann hlut, það að mönnum sé nauðgað sé eins og þegar beljurnar fara að humpast hvor á annari. Vandamálið getur ekki verið fangelsin þar sem ekki nærri því öllum þessum mönnum er nauðgað í fangelsi, fyrir utan það þá er ekki nærri því öllum þessum mönnum nauðgað af körlum, það er fáfræði og tregi að halda því fram. Samfélagið í heild sinni talar bara alls ekkert um nauðgun á karlmönnum,...

Re: Nauðgun?!

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Paze: Alveg eins og ef ég lofa öllu fögru um einhvern bíl sem ég ætla að selja þér en mæti svo með beyglaða ristavél. Þannig að þegar þú ert búinn að segjast ætla að selja mér bílinn þá mátt þú ekki hætta  við? á ég nokkurnvegin bílinn eftir það loforð?

Re: Nauðgun?!

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Guð minn almáttugur fyrrverandi karlinn hennar má eiga alla þá gremju sem fyrirfinnst á þessu jarðríki yfir því að hún hafi hætt við...það breytir ekki þeirri staðreynd að hún, rétt eins og hann, á rétt á því að hætta við hvenær sem henni dettur það í hug! Þannig að kynferðisleg gremja er nóg til að afsaka nauðgun? Setjum upp dæmi: Stelpa sem er "mega heit" fer niðrí bæ í hérumbil engum fötum, fær sér að drekka og skemmtir sér með vinkonum sínum, fer síðan að dansa við einhvern gaur, kyssir...

Re: Nauðgun?!

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Fyrirgefðu ég skal endurorða....hvernig þýðist "ég er samt svo þreytt ég ætla bara að fara að sofa" yfir í "ójá, ég vill þig ef þú byrjar að káfa á mér þegar ég er farin að dotta"

Re: Double standard.

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
hvor á að borga á deiti karlinn eða konan?

Re: Double standard.

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Femínismi snýst orðið meira um kvenréttindi en jafnrétti...það er ótrúlegt en satt munur þar á. Það er t.d. rosalegur femínískur sigur þegar það sitja fleiri konur í stjórn fyrirtækis en karlar, það er að sjálfsögðu miklar framfarir, en stórsigrar femínismans mega ekki valda því að karlmenn endi með því að lúta í minni pokann. Fyrir mér er það enginn sigur að það séu fleiri konur en karlar sem háskólamennta sig, ekki heldur að það séu fleiri konur en karlar í ríkisstjórn osf. það þýðir...

Re: Nauðgun?!

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Þannig að það er bara sjálfsagður hlutur þegar mönnum er nauðgað í fangelsum? En konum? Svo vil ég líka minna þig á það að yfir 300.000.000 manna búa í Bandaríkjunum en aðeins rúmar 2.000.000 þeirra eru lokaðir inn í fangelsum, svo þarf að sjálfsögðu að draga kvennfólk úr fjölda fangelsaðara. Svo þú sérð það að undir 1% bandaríkjamanna er fangelsaður þannig að það getur nú varla verið að nánast öll tilfelli þar sem karlmönnum er nauðgað þar séu eru framin í fangelsum. Afhverju fá þessi...

Re: Nauðgun?!

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Ég myndi ekki álíta "körlum getur ekki verið nauðgað" syndrome-ið sem karlhatur og alls ekki álykta að það fyrirfinnist aðeins í femínistum . Þetta er partur af gölluðu almannaáliti og upplýsingaskorti sem verður að bæta úr. Kvenhatarar geta alveg verið á þessari skoðun rétt eins og Karlhatarar og allir aðrir.

Re: Nauðgun?!

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Tölfræðin sýnir fram á það að karlar sem verða fyrir nauðgun af konu tilkynna það yfir höfuð ekki, m.a. vegna þess almenningsálits að karlar séu bara alltaf tilbúnnir til samræðis og eigi bara að prýsa sig sæla að hafa fengið að geyma typpið á góðum stað...nefni karakter Charlie Day í Horrible Bosses og álits vina hans sem dæmi í þessu samhengi (gera grín af honum fyrir að fýla ekki kynferðislega áreitni heita yfirmannsins síns). Karlar eru hinsvegar gerendur í meirihluta tilkynntra nauðgana...

Re: Nauðgun?!

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Það að hann hafi skyndilega hætt og beðið hana síðan afsökunar gefur í skyn að hann hafi áttað sig á því að hún vildi þetta ekki...hvort hún hafi gefið það í skyn með orðinu "Nei", með svip eða með því að kýla hann í punginn skiptir bara akkurat engu máli...orðið "Nei" þarf ekkert endilega að vera partur af málinu...það að vera steinsofandi er hinsvegar hint um það að maður sé ekki beint í stuði fyrir kynlíf þá stundina... Finnst annars uppsetningin á þessari setningu mjög áhugaverð...eiga...

Re: Nauðgun?!

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
...í hvaða heimi er "ég er samt svo þreytt ég ætla bara að fara að sofa" samþykki fyrir kynlífi...hvernig þýðist það yfir í "ójá ég vill þig ef þú byrjar að káfa á mér þegar ég er farin að dotta"

Re: Nauðgun?!

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Ef hinn aðilinn er sofandi...láttu hann í friði. Það að fara ofan á sofandi vinkonu þína er alls ekki það sama og að káfa á henni í svefni. Ég efast stórlega um að viðkomandi "vinur" hafi verið sofandi í gegnum allt ferlið og gert þetta í "slysni". Er það að daðra allt í einu orðið samþykki fyrir kynlífi? ef svo er síðan hvenær? Því þá ætti ég að hafa verið eins og skemmtitæki í Disney World í gegnum tíðina! Fyrir utan það að þá leyfi ég mér að efast um að þetta hafi verið "misskilin...

Re: Pomeranian-Hvolpar-ræktun.

í Hundar fyrir 13 árum, 6 mánuðum
það er fullt af góðum pommaræktunum á íslandi fyrir utan dalsmynni, ekki fara í hrfí, það er lítið sem ekkert af pommum þar frekar tala við fólkið hjá REX. Skeljaræktun er rosalega góð, hundarnir eru bara gæludýr og konan sem á ræktunina vel úr eigendur handa hundunum sínum, selur ekki bara hverjum sem er, svo henni er alls ekki sama um dýrin sín (sem er gott). Mæli eindregið með henni!

Re: Húðflúr mistök mín...

í Húðflúr og götun fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Fólk segir bara svona! Finnst þetta óþarfa viðkvæmni í þér að fara að setja út á þetta! Hún hefur fullan rétt á því að kalla hundinn sinn hvað í fjandanum sem hún vill!

Re: Veikleiki og daggæsla

í Börnin okkar fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Þetta á ekki við um astma veik börn eða börn með “króníska sjúkdóma” heldur ef barnið er með mikinn hósta og slappt, hættir ekki að grenja þó þú borgir því…þá telst barnið veikt, og það er mikið auka byrgði á dagmóðurina að þurfa að reyna að sinna veika barninu og síðan 4-5 öðrum. Tengdamammma mín er dagmamma og hún er sífellt að lenda í því að fólk komi með veik börn til hennar, sum með bullandi hita þegar þau mæta! Síðan smita þau hin börnin og já…þetta er bara hið mesta vesen og...

Re: Hráfæði

í Hundar fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Bæði ræktandinn minn og dýralæknir segja að þurrfóður sé best fyrir hundinn, sérstaklega fyrir tennurnar og feldinn…

Re: Er það virkilega að 23% Íslendinga séu hálfvitar?

í Stjórnmál fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Jóhanna Sigurðardóttir = kommúnistaflokkurinn…formaður samfylkingar þar af leiðandi vil ég flokka Samfylkinguna undir kommúnistaflokk Steingrímur J. Sigfússon = vill Netlöggu = það sama og er í gangi í kína…lítill kommúnisminn þar líka…vill hátekjuskatt…s.s. að allir hafi það jafn skítt og ríkið eigi allt…= kommúnismi…Steingrímur J. = formaður Vinstri grænna …skrítið að ég skuli flokka vinstri flokka undir kommúnista…kjáninn ég!

Re: Hversu sterkur er réttur móðurinnar?

í Börnin okkar fyrir 14 árum, 7 mánuðum
barnið býr ekki heima hjá móðurinni hann býr heima hjá foreldrum mínum…og vill bara helst ekki vera annarsstaða

Re: Tips fyrir strákanna :)

í Rómantík fyrir 14 árum, 8 mánuðum
tíhí :L missti eitthvernveginn alveg af þeim :P sorry!

Re: Tips fyrir strákanna :)

í Rómantík fyrir 14 árum, 8 mánuðum
tjah…ég verð nú að segja fyrir mína parta að þetta er ALLT of mikið! ég myndi enda með því að æla yfir kærastann minn ef hann væri alltaf að drepast úr rómantík eitthvað! og veistu…bestu stundirnar sem ég á með kærastanum mínum eru fyrir framan sjónvarpið með bjór og pizzu…og helst körfuboltaleik í gangi! og já strákar EKKI nota þetta á gellu sem þið eruð að huzzla…gerið þetta við kærustuna ykkar ef þið eruð virkilega ástfangin….

Re: Fleyg orð um ketti

í Kettir fyrir 14 árum, 8 mánuðum
ooo! ég sakna bara kattanna minna við að lesa þetta! …mig langar í nýjann!! en já! góð grein! allt SVO satt…
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok