Ég hef eiginlega alltaf haft stutt hár, síðan náði ég loksins að safna hári. Á meðan að þetta ferli var í gangi átti ég kærasta með stutt hár, síðan datt honum í hug að safna hári og þá vildi ég alls EKKI hafa styttra hár en kallinn. Að lokum gafst ég upp og fór í klippingu og núna erum við með svipað sítt hár (það nær aðeins lengra en axlirnar). Það var mikið bögg í byrjun en ég er búin að venjast því núna :)