Mikið hefur verið rætt um væntanlega breiðskífu hljómsveitarinnar Noise undanfarið og hef ég nú loksins góðar heimildir fyrir því að þeir séu búnir að vera að vinna baki brotnu við plötuna síðan í desember. Ég ætla því aðeins að renna yfir sögu Noise. Sveitin var stofnuð einhvern tímann árið 2001 og sá ég þá fyrst á músíktilraunum það árið. Ég fílaði þá um leið og fannst þeir frábærir, kraftmikið og flott rokk. Þeir komust í úrslit en lentu ekki í neinu sæti, því miður. Um það bil mánuði...