…Jæja síðasta helgi var ekki allveg eins og ég bjóst við að hún myndi verða… Eins og menn tóku kannski eftir þá var allveg ótrúlega vont veður síðasta föstudag (31.jan) en jújú… samt fórum við 5 vaskir skátar úr Vífli(+1 frá öðru félagi), keyrandi upp á hellisheiðina klukkan svona 9 að kvöldi til. Ákváðum að fara út hjá skíðaskálanum. En sú ákvörðun var frekar erfið því maður sá hreinlega ekki neitt út úr bílnum! en auðvitað fórum við ekkert að fara hætta við núna! áfangastaðurinn var hinn...