Smiðir henta vel ef þú þarft t.d að upphafsstilla breytur í klasanum. Smiðurinn er alltaf keyrður einu sinni fyrst þegar þú býrð til tilvik af klasanum. Síðan er hægt að hafa fleiri en einn smið, og jafnvel láta hann taka inn færibreytur. Í flestum forritunarmálum er það þannig að ekki er nauðsynlegt að skilgreina smið. Gott dæmi er t.d ef þú ert með Date klasa. class Date { int day; int month; int year; Date() { day = 24; month = 12; year = 2000; } Date(int _day, int _month, int _year) {...