Myndlist Myndlistarnám felur í sér ákveðið ferli sem má skilgreina sem færniþættina: sköpun, túlkun og tjáningu annars vegar og skynjun, greiningu og mat hins vegar. Myndlistarkennsla á að byggjast á því að þroska færni nemenda á báðum þessum sviðum. Sköpun, túlkun og tjáning vísar til notkunar nemendans á fjölbreytilegu úrvali efniviðar og miðla greinarinnar til þess að skapa og tjá tilfinningar, hugsanir, hugmyndir og lausnir. Skynjun, greining og mat vísar til þekkingar og skilnings á...